Til leigu í Stöðvarfirði.

Óseyri er frábær staður fyrir alla þá sem vilja slappa af, njóta útivistar og góðs félagsskapar í vel útbúnu húsi -auk gamesroom í Hlöðunni, í glæsilegu umhverfi.

Heitur pottur, þvottavél, uppþvottavél er meðal þess sem fylgir á Óseyri.  Hægt að leigja aukalega 80m2 uppgerða hlöðu með snókerborði, borðtennis og fótboltaspili. (sjá bókanir)

Við bæjardyrnar rennur Stöðvará þar sem menn geta rennt fyrir silung. Þeir sem leiga Óseyri yfir rjúpnatímann geta gengið á fjall í ágætis rjúpnasvæði sem fylgir bænum.  Einnig er mjög fínt berjasvæði.  Stutt í Breiðdalinn, 15km þar sem eru miklir möguleikar  í lax, silung gæs og rjúpu.

Frábært 130 m2 hús á glæsilegum stað fyrir fjölskyldu og vini til að slappa af og eiga góðar stundir saman. 

Óseyri Stöðvarfjörður - Gisting

 Vel útbúið hús með fjórum svefnherbergjum

Óseyri Sveitabær - Gisting

Sólpallur, frábær í grillið 

 Stór sólpallur með heitum potti. 

Náttúruperla - Óseyri Stöðvarfjörður

Horft inn Stöðvarfjörð. Óseyri hægra megin við botn fjarðarins 

 4 km frá Óseyri: Verslun og ýmist þjónusta á Stövarfirði. Sundlaug opin yfir sumartímann, Steinasafn Petru Sveinsdóttur, Gallerí og m. fl.

Gisting  á Óseyri - Stöðvarfjörður

Rúm fyrir 9 manns 

Óseyri Stövarfirði - Gisting

Séð frá Öldunni.  Sandfjara sem gaman er að ganga á

 Séð út Stöðvarfjörð úr stofunni

Óseyri gisting - Sveitasæla

Séð inn Stöðvardal. Rólur og sandkassi fyrri krakkana