Óseyri er frábær staður fyrir alla þá sem vilja slappa af eða njóta útivistar í vel útbúnu húsi í glæsilegu umhverfi. Húsið er 130 m2 og í húsinu eru fjögur svefnherbergi með rúm fyrir 9 manns. Stór og björt stofa (tv,dvd), gott eldhús, baðherbergi með sturtu og baði, auka snyrting og þvottahús. Í kringum bæinn er mikið pláss, stór tún og merktar og ómerktar gönguleiðir upp í fjöll og í fjörum. Við bæjardyrnar rennur Stöðvará þar sem menn geta rennt fyrir silung. Þeir sem leiga Óseyri yfir rjúpnatímann geta gengið á fjall í ágætis rjúpnasvæði sem fylgir bænum. Einnig er stutt í Breiðdalinn, 15km þar sem eru miklir möguleikar í lax, silung gæs og rjúpu.
|
||
Frábært hús á glæsilegum stað fyrir fjölskyldu og vini til að slappa af og eiga góðar stundir saman. ![]() Vel útbúið hús með fjórum svefnherbergjum ![]() Sólpallur, frábær í grillið Stór sólpallur með heitum potti. Horft inn Stöðvarfjörð. Óseyri hægra megin við botn fjarðarins |
4 km frá Óseyri: Verslun og ýmist þjónusta á Stövarfirði. Sundlaug opin yfir sumartímann, Steinasafn Petru Sveinsdóttur, Gallerí og m. fl. ![]() Rúm fyrir 9 manns ![]() Séð frá Öldunni. Sandfjara sem gaman er að ganga á Séð út Stöðvarfjörð úr stofunni Séð inn Stöðvardal. Rólur og sandkassi fyrri krakkana |
|



