Til leigu fyrir austan Bærinn Óseyri er staðsettur í botni Stöðvarfjarðar 4 km frá þorpinu. Óseyri tilheyra tún í kringum bæinn, hluti af Stöðvará og partur af norðurhlíð Stöðvarfarðar. Stöðvarförður er lítill fallegur fjörður með einhver formfergurstu fjöll á landinu. Steinasafn Petru Sveinsdóttur er á Stöðvarfirði. Safnið hefur rækilega sett Stöðvarfjörð á kortið en safnið sækja tugir þúsunda ferðamanna ár hvert.
Góð útisundlaug með heitum potti er opin yfir sumarið. Stöðvarfjörður er fallegur lítill fjörður með mikið af skemmtilegum gönguleiðum merktum og ómerktum. Bæði hægt að ganga til fjalla og í fjörum. Aldan er falleg sandfjara sem er við botn fjarðarins -beint fyrir framan Óseyri og er skemmtileg til að fá sér göngutúr á og draga að sér gott sjávarloft. Smáfólkinu finnst líka frábært að hlaupa þar um og leika sér í sandinum. Einbúinn er mikill klofinn steindrangi uppi í Janfardal. Þangað er búið að merkja gönguleið og það er þess virði að ganga upp í dalinn til að skoða hann. Saxa er lítil klettavík rétt utan við fjörðinn norðanverðan og það er skilti við þjóðveginn sem vísar á hana. Saxa er glæsileg og kraftmikil þegar vindurinn stendur af suðri og inn í hana. Sjórinn þrýstist inn í einstaka vík í berginu og hendir sjó og þara tugi metra upp á land. Norðanverðu í firðinum er nú skógrækt, þar eru slóðar sem gaman er að labba eftir og virða fyrir sér hinar hinar ýmsu tegundir trjáa- og plöntutegunda sem þar vaxa. Rétt er að benda þeim sem hafa áhuga hafa að Blæösp vex þar villt á nokkuð stóru svæði. Endilega kíktu á Stöðvarfjörð
![]() Stöðvarfjörður |
Steinasafn Petru Sveinsdóttur ![]() Einbúinn er tignarlegur. Vel þess virði að skoða hann ![]() Kaffi Steinn. Veitingar, kaffi og gisting Höfnin á Stöðvarfirði og Súlunar einhver formfegurstu fjallatindar landsins ![]() Aldan sandfjara fyrir framan Óseyri tilvalin til að fá sér göngutúr |




